Þið eruð nú meiri vælukjóarnir þannig að þið fáið stutt blogg
Því miður hefur bara ekkert verið að gerast hjá mér nema vinna og skóli. Áður en skólinn byrjaði þá var ég bara að vinna á fullu og fór svo bara heim í afslöppun.
Fyrsta vikan í skólanum var mega næs þar sem ég var bara að chilla og leyfði mér að sofa út. Fór á fimmtudeginum og föstudeginum að vinna eftir hádegi. Það var vísó ferð síðasta föstudag í Glitni og mmm hvað ég væri til í djúpsteikta jalepeno stuffið eða allaveganna eitt stykki því að það var soldið mikið að fá sér 3-4 stykki
Haldið var á Hverfis eftir vísó og svo fórum við í opnunarpartý á Brons sem var bara voða næs
Ég fór svo bara snemma heim því að ég var svo uppgefin en bytturnar héldu áfram og voru víst mjög skrautlegar 
Ég man ekki hvað ég gerði síðustu helgi þannig að ég segi bara bla 
Þessi vika er bara búin að vera sturluð! Var í skólanum allan mánudaginn. Þriðjudagurinn fór í vinnu. Miðvikudagurinn fór í vinnu fyrir hádegi og tíma eftir hádegi. Fimmtudagurinn og föstudagurinn fór í skóla fyrir hádegi og vinnu eftir hádegi. Það var bara alveg mega næs í gærkvöldi því að þá lágum við upp í rúmmi og horfðum á mynd sem ég mæli með! Hún heitir Outlaw þannig að þið sem hafið ekkert að gera í kvöld fariði að leigja hana 
Ég er á leiðinni núna að læra í fjármálum mega stuð! Svo þarf ég náttla að klára skemmtilegu kynninguna mína fyrir tjáningu og samskipti en það verður nú ekkert problem held ég þar sem ég er að skrifa um hana Berglind
Ætli að maður reyni ekki að læra til svona 5 í dag og fer að horfa á leikinn sem Ísland er að fara vinna
Vonandi verður dómgæslan betri heldur en á móti Svíum því að það er ekkert meira böggandi þegar dómarinn er á móti manni 
Á morgun verður bara tekið massa lærdóm líka og æfa fyrirlesturinn í tjáningu.
Æj gvöð ég gleymi náttla aðalatriðinu sem gerðist í vikunni
Það er verið að pæla í að fara í útskriftarferð til Suður Afríku!!! OMG sko hvað ég er spennt fyrir því
Fara í safarí, surfa, skjóta úr byssum, fara og koma við hákarla og fullt annað 
En jæja ég þarf að fara fá mér að borða og svo læra þannig að
Later